Hollvinafélag Breiðholtskirkju boðar til aðalfundar í kvöld þriðjudaginn 14. febrúar kl. 20. Allir hollvinir og velunnarar kirkjunnar eru hvattir til þess að mæta og taka virkan þátt í umræðum um kirkjustarfið. Te, kaffi og hollt meðlæti kr. 500. Nýjir félagsmenn sérstaklega velkomnir.
Dagskrá: Kosning fundarstjóra og ritara / skýrsla formanns / reikningar / breytingar á samþykktum félagsins / ákvörðun árgjalds / kosningar/ önnur mál.