Á morgun, miðvikudag, verður margt um að vera í kirkjunni.  Bæna- og kyrrðarstund er í hádeginu og hefst hún klukkan 12.  Eftir stundina er boðið upp á hádegishressingu.

Maður er manns gaman er félagsskapur hugsaður fyrir 60 ára og eldri.  Samverurnar byrja klukkan 13:30 og á morgun fáum við að hlýða á erindi frá Þjóðminjasafninu sem ber yfirskriftina ,, Í þá gömlu góðu´´ og einnig heyrum við harmonikkutóna frá honum Hreini Eyjólfssyni.

TTT starfið hefst klukkan 16 og þangað eru allir krakkar velkomnir á aldrinum 10 – 12 ára.

Verið hjartanlega velkomin.