Messa kl. 11, prestur sr. Gísli Jónasson, organisti Örn Magnússon, félagar úr kór kirkjunnar syngja.  Kveikt verður á þriðja aðventukertinu, hirðakertinu.   Molasopi og smákökur í safnaðarheimilinu að messu lokinni.

Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjón Nínu Bjargar Vilhelmsdóttur djákna.  Loðnir vinir koma í heimsókn og fjársjóðskistan geymir óvæntan fjársjóð.  Jólasöngvar og notaleg stund fyrir börn á öllum aldri.  Djúshressing og smákökur í lok stundarinnar.