Sunnudagaskóli kl. 11.  Nína Björg Vilhelmsdóttir djákni sér um stundina.  Biblíusaga sögð með myndum, söngur og bænir við allra hæfi.  Almanak Kristniboðssambandsins að gjöf og djúshressing í lokin.

Messa kl. 11.  Sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og þjónar fyrir altari.  Organisti Örn Magnússon og kór kirkjunnar syngur.  Messuhópur tekur virkan þátt og fermingarbörn tendra ljós á altarinu og hringja kirkjuklukkum.  Tekið verður við framlögum til Kristniboðssambandsins.  Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.