Á morgun, miðvikudag, verður samvera hjá félagsskapnum Maður er manns gaman.  Við hittumst á okkar venjulega tíma klukkan 13:30 og í þetta sinn ætlum við að bregða okkur af bæ.  Ferðinni er heitið í Hellisheiðarvirkjun þar sem við getum skoðað jarðhitasýninguna og fengið kaffi og tertusneið á eftir.  Það kostar 1500 krónur í ferðina.  Allir eru hjartanlega velkomnir, vinsamlega skráið ykkur í kirkjunni.

TTT  er starf fyrir alla krakka á aldrinum 10 – 12 ára.  Fyrsti fundur verður á morgun, athugið að við verðum á miðvikudögum í vetur.  Á fyrsta fundinum okkar ætlum við að fara í leiki, spjalla saman og gæða okkur á nýbakaðri súkkulaðiköku.

Kyrrðarstundin verður á sínum stað og hefst hún klukkan 12:00.  Eftir stundina er boðið upp á létta hádegishressingu.