Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11, Jesús gefur lífinu lit!  Kirkjan verður skreytt í öllum regnboganslitum og þátttakendur hvattir til að koma í litríkum fötum.  Spurning dagsins verður:  Hver er litur föstunnar?  Hressing í safnaðarheimilinu að lokinni litaguðsþjónustunni.

Tómasarmessa kl. 20, brauð lífsins!  Fyrirbæn með handayfirlagningu og smurningu, máltíð Drottins, hugleiðing og fjölbreytt tónlista.  Tekið verður á móti samskotum til Kristniboðssambandsins.  Kaffi og te í safnaðarheimilinu að messu lokinni.