Fastan er sá tími  sem gott er að nota til að dýpka og þroska eigið trúarlíf.  Það gerum við ekki síst í bæninni.  Fastan er einnig tími til að huga að öðrum, aðstæðum þeirra og líðan.  Það er gott að biðja fyrir öðrum á föstunni.  Alla miðvikudaga eru bæna- og kyrrðarstundir í kirkjunni.  Hægt er að koma með fyrirbænaefni í kirkjunni, í stundinni sjálfri eða símleiðis (587-1500)  Stundirnar hefjast klukkan 12:00 og eftir þær er boðið upp á hádegishressingu í safnaðarheimilinu.