Messa kl. 11.  Sr. Gísli Jónasson prédikar og þjónar fyrir altari.  Organisti Örn Magnússon og kór kirkjunnar syngur.  Messuhópur 2 tekur virkan þátt í messunni og vænst er þátttöku fermingarbarna og foreldra þeirra.  Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.

Sunnudagaskóli kl. 11.  Umsjón Nína Björg Vilhelmsdóttir djákni, Karen Ósk Sigþórsdóttir hönnuður og Linda Rós Sigþórsdóttir kennari.  Skoðað verður í fjársjóðskistuna og brúður láta ef til vill sjá sig ef þær komast í safnaðarheimilið fyrir veðri og vindum.  Öll börn fá fallega sögu með sér heim og blessunin er heldur aldrei langt undan.  Djúshressing í lok stundarinnar.