Messa kl. 11 sunnudaginn 16. janúar. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, organisti Örn Magnússon, kór kirkjunnar syngur. Messuhópur tekur virkan þátt í messunni og eru fermingarbörn hvött til þátttöku. Guðspjall dagsins er sagan af Sakkeusi sem var svo smár að hann klifraði upp í mórberjatré til þess að sjá Jesú í Jeríkó.
Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón Nína Björg Vilhelmsdóttir djákni, Linda Rós Sigþórsdóttir kennari og Karen Ósk Sigþórsdóttir hönnuður. Skoðað verður hvað leynist í fjársjóðskistunni og sagan af Sakkeusi sögð í máli og myndum.