Fjórða sunnudag í aðventu 19. desember verða jólasöngvar fjölskyldunnar kl. 11.  Umsjón hefur Nína Björg Vilhelmsdóttir djákni.  Kveikt verður á fjórða aðventukertinu, englakertinu, börn leika á hljóðfæri og tekið verður á móti söfnunarbaukum Hjálparstarfs kirkjunnar.  Jólasöngvar verða í fyrirrúmi og boðakapur aðventu og jóla boðaður með kærleika og frið.  Kaffisopi í safnaðarheimilinu að lokinni stundinni.