Það var mikið um að vera í kirkjunni okkar í gær.  Fermingarbörnin gengu í hús í hverfinu og söfnuðu fyrir Hjálparstarf kirkjunnar.  Á sama tíma var fjölskyldufjör hjá Kirkjukrökkum.  Þau buðu foreldrum og systkinum með sér á fundinn og af því tilefni var slegið upp veislu.  Starfsmaður frá ABC kom og tók við baukum sem krakkarnir hafa verið að safna aur í fyrir vini sína í Uganda.  Ofan úr kirkju heyrðust fagrir tónar en þar var kirkjukórinn að æfa.  Takk fyrir samveruna kæru vinkonur og vinir.