Á morgun miðvikudag fáum við góða gesti til okkar í Maður er manns gaman.  Það eru þau Heiðrún Guðvarðard., Guðvarður  Jónsson og Daníel Jónasson sem flytja okkur fallega tónlist.  Stundin hefst klukkan 13:30 í safnaðarheimili kirkjunnar.  Eftir spjall og söng er heitt á könnunni.  Allir eru hjartanlega velkomnir.

Líkt og alla aðra miðvikudaga er fyrirbæna- og kyrrðarstund í hádeginu og hefst hún klukkan 12:00.  Hægt er að koma fyrirbænaefnum í síma 587-1500 eða á staðnum.  Eftir stundina er boðið upp á hádegishressingu í safnaðarheimilinu.