Nú á dögunum var haldið í rútferð í Heiðmörk að líta augum fegurð haustlitanna.  Á ferðinni var félagsskapurinn Maður er manns gaman.  Heiðmörkin skartaði sínum fegurstu haustlitum og gladdi það mannskapinn.  Næst var haldið í Lindakirkju í Kópavogi.  Þar tóku þau Sigríður  meðhjálpari og sr. Guðni Már á móti hópnum.

Næsta samvera hjá félagsskapnum er miðvikudaginn 13. október klukkan 13:30.  Þá verður spjallað, gripið í spil og handavinnan unnin.  Allir eru hjartanlega velkomnir.