Í kvöld fimmtudagskvöldið 6. maí  verður samvera fyrir messuþjóna í prófastsdæmunum í Reykjavík og gesti frá nágrannabyggðum.   Fulltrúar safnaðanna deila reynslu sinni og Egill Heiðar Gíslason formaður sóknarnefndar í Laugarnessókn segir frá rigerð sem hann hefur skrifað um þetta mikilvæga starf.  Einnig mun sr. Kristján Valur Ingólfsson ræða um altarissakaramentið undir yfirskriftinni:  Gef oss í dag vort daglegt brauð.  Í lokin verður helgistund og síðan verður boðið upp á kaffi í safnaðarheimilinu.  Allt áhugafólk um messuþjónastarfið er velkomið.