Nú eru gleðidagar því Kristur er upprisinn, Kristur er sannarlega upprisinn.

Starfið í kirkjunni í páskavikunni er með hefðbundnu sniði.  Á morgun miðvikudag er kyrrðarstund í hádeginu sem hefst klukkan 12:00.  Eftir hana er boðið upp á létta hádegishressingu.

Maður er manns gaman hittist klukkan 13:30 annan hvern miðvikudag og á morgun verður kynning á völdum vörum frá Mjólkursamsölunni.

Kirkjuprakkarar hittast seinnipartinn á morgun, syngja saman, heyra Guðs orð og fara í leiki.  Allir krakkar velkomnir á aldrinum 6-9 ára.

Barnakórar kirkjunnar æfa á fimmtudögum, Broskórinn í Breiðholtsskóla klukkan 14:15 og eldri kórinn klukkan 15:30 í kirkjunni.  TTT hittast hress og kát kl. 16:30.

Allir föstudagsmorgnar eru foreldramorgnar í kirkjunni.  Spjall, fræðsla og kaffi/tesopi.

Verum saman í Breiðholtskirkju í gleðinni 🙂