Námskeið um bænina verður haldið í safnaðarheimilinu þriðjudaginn 9. febrúar kl. 18-21.  Á námskeiðinu verður fjallað um bænina bæði út frá Biblíunni og kristinni trúarhefð.  Kynntar verða ýmsar aðferðir bænalífsins og hvernig við getum eignast innihaldsríkt bænalíf í önnum og amstri dagsins.  Umsjón með námskeiðinu hefur sr. Bryndís Malla Elídóttir.  Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og boðið er upp á súpu og brauð.  Skráning er í síma 587 1500 eða á breidholtskirkja@kirkjan.is