Fjórði sunnudagur í aðventu 20. desember:   Jólasöngvar fjölskyldunnar kl. 11 í umsjón Nínu Bjargar Vilhelmsdóttur djákna, barnakórarnir syngja við undirleik Julian E. Isaacs.  Jólaglaðningur fyrir börnin og kaffisopi í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni.

Aðfangadagskvöld:  Aftansöngur kl. 18, prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, kór kirkjunnar syngur, organisti Smári Ólason.

Jóladagur:  Hátíðarmessa með altarisgöngu kl. 14, sr. Gísli Jónasson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Nínu Björgu Vilhelmsdóttur djákna.  Kirkjukórinn syngur undir stjórn Smára Ólasonar organista.

Annar dagur jóla:  Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14, prestar kirkjunnar þjóna, börn úr kirkjuprökkurunum sýna helgileik, umsjón með kirkjuprökkurunum hafa Nína Björg og Linda Rós.  Barnakórarnir syngja við undirleik Julian E. Isaacs.

Gamlárskvöld:  Aftansöngur kl. 18 prestur sr. Gísli Jónasson, kór kirkjunnar syngur, organisti Smári Ólason

Nýársdagur:  Hátíðarmessa með altarisgöngu kl. 14, sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Nínu Björgu Vilhelmsdóttur djákna.  Kirkjukórinn syngur og organisti er Smári Ólason.