Sunnudaginn 8. nóvember á Kristniboðsdaginn verður messa kl. 11.  Prestur sr. Gísli Jónasson prófastur sem mun setja Nínu Björgu Vilhelmsdóttur inn í þjónustu djákna við kirkjuna.  Prédikun dagsins flytur Nína Björg og textinn er Kristniboðsskipunin í 28. kafla Matteusarguðspjalls.  Organisti Julian E. Isaacs og kirkjukórinn syngur, einnig tekur messuhópur virkan þátt í messunni.  Tekið verður við samskotum til Kristniboðssambandsins.  Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu að messu lokinni.  Fjölmennum til kirkju og bjóðum nýjan djákna velkominn til starfa.

Sunnudagaskóli kl. 11 – fjársjóður til framtíðar fyrir yngstu kynslóðina.  Gefum þeim tækifæri til að vera litlir lærisveinar.