Fyrsti sunnudagaskóli vetrarins verður nk. sunnudag 30. ágúst.  Hann hefst samhliða messunni kl. 11 en síðan fara börnin niður í safnaðarheimili þar sem tekur við söngur, sögur og bænir að ógleymdri fjársjóðskistunni.  Umsjón með sunnudagaskólanum hafa þær Nína Björg Vilhelmsdóttir, Karen Ósk Sigþórsdóttir og Linda Rós Sigþórsdóttir.  Í messu sunnudagsins þjónar sr. Bryndís Malla Elídóttir og Julian E. Isaacs leikur á orgelið.  Eftir messuna sameinast allir í safnaðarheimilinu þar sem boðið verður upp á djús, kaffi og te.  Verið velkomin í kirkju á sunnudaginn!