Helgin er svo sannarlega búin að vera annasöm hjá TTT.  Þau Ester, Inga og Matti fóru fyrir hönd Breiðholtskirkju og tóku þátt í spurningakeppninni Jesús lifir.    Þau stóðu sig með stakri prýði og voru kirkjunni sinni til sóma.  Til hamingju með árangurinn.Keppnin var haldin í Árbæjarkirkju og Íslensku Kristskirkjunni og hófst á laugardegi og lauk á sunnudegi.  Í ár tóku 11 lið þátt í keppninni og flestir þátttakendur gistu í Árbæjarkirkju aðfaranótt sunnudagsins.  Það var einkar ánægjulegt að stuðningsfólkið okkar mætti og var með okkur í pizzupartýinu og sundlaugarferðinni á laugardeginum.  Það var mikill hugur í liðinu okkar eftir mótið og þau voru öll ákveðin í að komast aftur í spurningakeppnina að ári.