Það styttist óðum í æskulýðsdaginn sem er 1. mars.  Kirkjuprakkarar eru byrjaðir að undirbúa sig fyrir æskulýðsdaginn, en þau sjá um almennu kirkjubænina í messunni.  Bænirnar voru þau að setja saman í gær ásamt góðum hjálparhellum sem koma úr fermingarstarfinu.  Börnin voru ánægð með að fá svo góða hjálp og fermingarbörnin stóðu sig með prýði.