Messa og sunnudagaskóli kl. 11 næst komandi sunnudag 21. september. Prestur sr. Gísli Jónasson, organisti Julian E. Isaacs, kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng. Kaffisopi í safnaðarheimilinu eftir messu.
Sunnudagaskólinn býður upp á fjöruga og uppbyggilega samveru í safnaðarheimilinu. Þar er föndrað, sungið, sagðar sögur og að sjálsögðu koma brúðurnar í heimsókn. Allir krakkar fá fjársjóðsbókina sem þau safna límmiðum í yfir veturinn.