Messur

Sunnudaga kl. 11:00

Messað er í Breiðholtskirkju hvern helgan dag kl. 11 á tímabilinu frá sept. til loka maí. Undantekning er þó síðasta sunnudag í mánuði en þá er sameiginleg æskulýðsmessa kirknana í Fella- og Hólakirkju kl.20:00. Sunnudagaskólinn er í Fella- og Hólakirkju.

Alþjóðlegi söfnuðurinn í Breiðholtskirkju hefur sitt helgihald kl. 14. Þær eru á ensku, með túlk af AI samtímis.

Í Breiðholtsprestakalli eru tvær sóknir og kirkjur, Breiðholtskirkja og Fella- og Hólakirkja. Guðsþjónustur eru kl. 20 í Fella- og Hólakirkju og sunnudagaskólinn er þar kl.11.

Alþjóðlegi söfnuðurinn í Breiðholtskirkju

Sunnudaga kl. 14:00

Alþjóðlegi söfnuðurinn í Breiðholtskirkju (The International Congregation in Breiðholts Church) kemur saman á sunnudögum kl. 14:00 í Breiðholtskirkju. Hann hefur bænastundir og guðsþjónustur sem fara fram á ensku. Barnagæsla er á meðan guðsþjónustan fer fram. Síðasta sunnudag í mánuði eru guðsþjónustur á farsí. Séra Toshiki Toma og séra Árni Þór Þórsson, prestar innflytjenda og hælisleitenda, hafa umsjón með starfinu.

Kyrrðarstundir

Miðvikudaga kl. 12:00

Kyrrðarstundir eru í hádeginu á miðvikudögum kl. 12:00 allt árið um kring. Stutt helgistund með ritningarlestri, altarisgöngu og fyrirbæn. Að stundinni lokinni, um kl. 12:40 stendur til boða léttur málsverður í safnaðarheimilinu. Þátttakendur og starfsfólk kirkjunnar taka á móti bænarefnum.